Dagur íslenskrar tungu 16. nóvember 2026
Dagur íslenskrar tungu 16. nóvember 2026
Foldaskóli hélt upp á dag íslenskrar tungu með söng og ljóðalestri. Tanja og Tara nemendur í 7. bekk lásu pistil um dag íslenskrar tungu og Jökla í 8.bekk las tvö ljóð. Ótrúlega flottur lestur hjá þessum flottu ungu stúlkum. Kór skólans (nemendur úr 6. og 7. bekk) sungu lagið "Á Íslensku má alltaf finna svar" og 3.bekkur söng lagið "Orðin mín". Ragnheiður tónmenntakennari söng svo lagið "Slá í gegn" með stuðmönnum. Flott dagskrá og góð áminning um hvað tungumálið okkar, íslenskan er fallegt tungumál.