Stærðfræðikeppni Borgarholtsskóla
Stærðfræðikeppni Borgarholtsskóla
Við erum stollt að segja frá því að þrír nemendur úr Foldaskóla urðu á meðal tíu efstu í sínum aldurshópum í stærðfræðikeppni Borgarholtsskóla. Verðlaunaafhending fór fram þriðjudaginn 3. mars. Freyr Magnússon varð í þriðja sæti í áttunda bekk og Hólmfríður Elfa Guðmundsdóttir í fjórða sæti. Rebekka Hilmisdóttir hreppti sjötta sætið í níunda bekk. Alls tóku rétt rúmlega 150 manns þátt í keppninni.