Skólinn

Teikning af Fjólu og samnemendum hennar ásamt tveimur kennurum.

Foldaskóli tók til starfa haustið 1985 og er elsti grunnskólinn í Grafarvogi. Umhverfi skólans býður upp á mikla möguleika þar sem hann stendur í nálægð við voginn sem státar af fjölbreyttri náttúru og iðandi fuglalífi. Einkunnarorð skólans eru siðprýði, menntun, sálarheill en með þeim viljum við undirstrika áherslu á virðingu, umhyggju og jákvæð samskipti, góða alhliða menntun og vellíðan.

Skólinn er heildstæður grunnskóli með um 470 nemendur og um 80 starfsmenn. Flestir nemendur skólans koma úr Foldahverfi, Hamrahverfi og Húsahverfi en skólinn er safnskóli á unglingastigi fyrir þessi hverfi. Við skólann er starfrækt sérdeild, Foldaver, fyrir einhverf börn. 

Í skólanum er faglegt og öflugt starfsfólk sem hefur það að markmiði að virkja og efla nemendur bæði náms- og félagslega. Lögð er áhersla á að koma til móts við þarfir nemenda með einstaklingsmiðuðu námi og fjölbreyttum kennsluháttum. Á yngri stigum er lagt upp úr samþættingu námsgreina og fá allir nemendur danskennslu auk hefðbundinna list- og verkgreina. Fjölbreytt námsframboð er á unglingastigi en þar geta nemendur valið úr mörgum námsgreinum þar sem lögð er áhersla á sköpun, læsi, félagsfærni og hreyfingu. Í Foldaskóla er öflugt umhverfisstarf og skólinn var grænfánaskóli frá 2006 -2022,  heilsueflandi skóli frá árinu 2010 og er nú þátttakandi í Grænu skrefum Reykjavíkur.

Farsælt samstarf er við frístundaheimilið Regnbogaland og félagsmiðstöðina Fjörgyn sem hafa aðstöðu í skólanum. Þá er góð samvinna við Skólahljómsveit Grafarvogs og tónlistarskólana í hverfinu en kennsla á hljóðfæri fer að hluta til fram í skólanum á skólatíma. Í skólanum er lagt mikið upp úr góðu samstarfi foreldra/forsjáraðila, nemenda og starfsfólks með hag nemenda að leiðarljósi.

Skólastarfsemi

Starfsáætlun

Hvað er framundan í Foldaskóla? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars stefnu skólans fyrir síðasta ár, skipulag kennslu og ótalmargt fleira. 

Skólanámskrá

Viltu vita meira um hugmyndafræði og daglegt starf Foldaskóla? Í skólanámskrá finnur þú ítarlegar upplýsingar um hugmyndafræðilegar áherslur og stefnu skólans í námi og starfi. 

  • Skoða skólanámskrá

Skólaráð

Við grunnskóla skal starfa skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Meginhlutverk skólaráðs að vera vettvangur fyrir alla fulltrúa skólasamfélagsins til að eiga samráð um málefni skólans.

Fulltrúar skólaráðs Foldaskóla 2024-2025:

  • Kristrún Guðjónsdóttir, skólastjóri
  • Ellen Klara Eyjólfsdóttir, aðstoðarskólastjóri
  • Elín Heiður Gunnarsdóttir, fulltrúi kennara
  • Svanfríður Ingjaldsdóttir, fulltrúi kennara
  • Bjarney Katrín Ísleifsdóttir, fulltrúi starfsfólks
  • Anna Aurora Waage Óskarsdóttir, fulltrúi foreldra
  • Jón Hreiðar Sigurðsson, fulltrúi foreldra
  • Ragnheiður Ósk Kjartansdóttir 10. KJ,   fulltrúi nemenda
  • Sólon Tumi Steinarsson 9. BB, fulltrúi nemenda
  • Þórunn Bríet Þrastardóttir, fulltrúi grenndarsamfélags

Fundargerðir skólaráðs:

 

Matur í grunnskólum

Skólamáltíðir eru gjaldfrjálsar veturinn 2024-2025 en mikilvægt er fyrir skólann að hafa áfram yfirsýn, halda utan um upplýsingar um ofnæmi og óþol og takmarka matarsóun. Því þarf eins og áður að skrá nemendur í mataráskrift.

 

 

Teikning af Fjólu að borða mat í skólanum

Foreldrasamstarf

Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn.

 

Í skólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að skólastarfi.

 

Foreldrafélag  er starfrækt í öllum skólum Reykjavíkurborgar. 

Teikning af Fjólu á leið í skólann ásamt fleiri nemendum og foreldrum

Skólareglur

Skólareglur Foldaskóla

Mat á skólastarfi

Markmið mats og eftirlits með gæðum starfsins er m.a. að veita upplýsingar um skólastarfið, árangur þess og þróun.

Skólahverfi Foldaskóla

Í Reykjavík eru mörg skólahverfi og lögheimili barnsins ræður því í hvaða hverfisskóla það fer.

 

Barnið þitt hefur forgang í sinn hverfisskóla. Engu að síður eiga allir foreldrar kost á að sækja um skóla fyrir börn sín hvar sem er í borginni samkvæmt reglum um skólahverfi, umsókn og innritun. 

 

Hér finnur þú upplýsingar um hvaða götur tilheyra skólahverfi Foldskóla.